Komin aftur á kreik?

Nú hef ég ekki skrifað hér á þetta blessaða blogg í mjög langan tíma. Þetta virðist eitthvað vefjast fyrir mér, finnst ég ekki hafa neitt að segja sem er reyndar mjög ólíkt mér því ég hef nú skoðanir á flestu!

En nú ætla ég að reyna þetta blogg eina ferðina enn. Þetta er víst nýjasta leiðin til að koma skoðunum sínum á framfæri og fylgjast með þjóðfélagsumræðunni  :) Ekki það að ég eigi von á að bloggfærslur mínar hafi áhrif á líf fólks eða að margir lesi þær yfirhöfuð en þó geta þá vinir og vandamenn skemmt sér yfir þessu ef ég gleymi þessu hreinlega ekki aftur :) Þið bara fylgist spennt með...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er spenntur fyrir því sem að þú hefur að segja láttu bara vaða, þínar skoðanir eru síður svo leiðinlegar elskan mín,.

Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 17:10

2 identicon

já, þú segir það :) Ég bíð spennt Inga mín. Ekki láta líða marga mánuði aftur ;)

Kittý (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband